Umhverfisráð - 316 (15.3.2019) - Grenndarkynning vegna lóðanna við Hringtún 17 og 19, Dalvík
Málsnúmer201902027
MálsaðiliOttó Biering Ottósson
Skráð afheidrun
Stofnað dags15.03.2019
NiðurstaðaSamþykkt
Athugasemd
TextiÁ fundi sínum 19. febrúar 2019 fól sveitarstjórn sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að grenndarkynna óverulegt frávik á deiliskipulagi lóðanna Hringtún 17 og 19. Breytingin fólst í stækkun á byggingarreitum, aukningar á byggingarmagni og að heimilt sé að byggja parhús í stað einbýlishúsa á lóðunum við Hringtún 17 og 19 samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti nr. 1 frá arkitektastofunni form ráðgjöf dags. 04.02.2019. Send voru út grenndarkynningargögn á sjö næstu nágranna og þeim kynnt tillagan og gefinn frestur til að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna til umhverfisráðs innan fjögurra vikna, eða til miðvikudagsins 20. mars 2019. Þann 5. mars 2019 barst sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs sameiginlegt athugasemdarbréf vegna breytingartillögunnar frá átta næstu nágrönnum Hringtúns 17 og 19. Megininntak athugasemda nágrannanna lítur að túlkun á 43. gr. skipulagslaga þ.e.a.s. hvort fyrrgreinda breytingartillögu eigi að túlka sem óverulega breytingu sem er grenndarkynnt eða sem almenna deiliskipulagsbreytingu með málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Einnig gera nágrannarnir athugasemdir við breytingu á húsgerðum þ.e.a.s úr einbýlishúsum yfir í parhús. Einnig bárust erindi frá eigendum að Hringtúni 21 og 30 ásamt Miðtúni 3 og 4 þann 14. mars. Umhverfisráð leggur til að tekið verði tillit til athugasemda nágranna um að eðlilegra sé að breytingartillagan lúti málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga og verði auglýst sem deiliskipulagsbreyting. Umhverfisráð telur að almennt séð sé ekki vera grundvallarmun á yfirbragði parhúsa og einbýlishúsa nema að því leyti að hús geta verið ólík í útliti. Væntanlega munu parhús ekki breyta yfirbragði hverfisins svo fremi sem þau verða í svipuðum mælikvarða og sú byggð sem komin er. Aukning umferðar vegna tveggja viðbótaríbúða er óveruleg og breytir ekki stöðu nágranna í neinum grundvallaratriðum. Umhverfisráðs leggur einnig til að gerðar verði eftirtaldar breytingar á grenndarkynntri tillögu á lóðum nr. 17 og 19 við Hringtún: 1. Að heildarbyggingarmagn á lóðum nr. 17 og 19 verði aukið úr 260 m² í 300 m². 2. Að lóð nr. 17 við Hringtún verði stækkuð um 94.3 m² á kostnað lóðar nr. 19. 3. Að byggingarreitir lóða nr. 17 og 19 við Hringtún séu stækkaðir um 1 m til vesturs. 4. Að norðurmörk byggingarreits lóðar nr. 17 við Hringtún verði færð um 2 m til suðurs, og verði eftir breytingu 5 m frá norðurlóðarmörkum í stað 3 m. 5. Að suðurmörk byggingarreits lóðar nr. 17 við Hringtún verði færð til suðurs um 4.2 m. 6. Að byggingarreit lóðar nr. 19 við Hringtún verði hliðrað um 4.2 m til suðurs. 7. Að austurmörk byggingarreita verði óbreytt miðað við gildandi deiliskipulag. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga með ofantöldum breytingum frá áður grenndarkynntri tillögu. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.